Sagan
1992 - 2022
Íslandshótel má rekja aftur til ársins 1992 þegar Hótel Reykjavík var opnað við Rauðarárstíg 37. Hótelið opnaði með 30 herbergi og þrjátíu árum síðar voru hótelin orðin 18 og rétt tæplega 2.000 herbergi.
1992
Byrjunin
Fyrirhugað hafði verið að húsnæðið að Rauðarárstíg 37 ætti að vera skrifstofubygging en Ólafur Torfason og fjölskylda ákvað að veðja frekar á hótelrekstur. Þessi framtíðarsýn þótti merkileg á sínum tíma þar sem ekki margir stefndu á ferðaþjónustuna.
1994
Holiday Inn keypt
Árið 1994 var Holiday Inn keypt og ári síðar var nafninu breytt og nýtt Grand Hótel Reykjavík opnað með 109 herbergi.
1997
Nýr ráðstefnusalur á Grand Hótel Reykjavík
Árið 1997 opnaði Gullteigur, stærsti ráðstefnusalur landins, á Grand Hótel Reykjavík en hann rúmaði 500 manns. Við þessa viðbót þá efldist verulega funda- og ráðstefnugeta hótelsins.
2005
Hótel Reykjavík Centrum
Hótel Reykjavík Centrum við Aðalstræti opnar þetta ár. Hótelið er byggt á gömlum grunni en elsti hluti hússins var byggður árið 1764 og fá töfrar liðinna tíma að skína í gegn. Hótelið er með 89 herbergi.
2007
Grand Hótel Reykjavík stækkar
Grand Hótel Reykjavík stækkaði um 202 herbergi er tveir sambyggðir 13 hæða turnar risu. Var hótelið þar með orðið stærsta hótel landsins með 311 herbergi.
2008 - 2009
Breyting á eignarhaldi Fosshótela
Í lok árs 2008 varð breyting á eignarhaldi Fosshótela þegar Ólafur Torfason keypti meirihluta í félaginu en Fosshótel keðjan var stofnuð árið 1996. Árið 1999 keypti Íslandshótel 10% hlut í Fosshótelum.
2012 - 2014
Sérstök tímamót í sögu Íslandshótela
Árið 2012 markaði sérstök tímamót í sögu Íslandshótela, en þá voru öll hótelin sameinuð undir merkjum Íslandshótela. Á næstu árum fjölgaði hótelunum jafnt og þétt á landsbyggðinni. Meðal annars Fosshótel Austfirðir á Fáskrúðsfirði sem opnaði árið 2013 eftir endurgerð í samvinnu við Minjavernd.
2015
Fosshótel Reykjavík
Árið 2015 opnaði Fosshótel Reykjavík dyrnar og var því orðið stærsta hótelið á Íslandi með 320 herbergi, ráðstefnusali, veitingastaðinn Haust og Bjórgarðinn. Sunnan heiða var Fosshótel Hekla einnig opnað.
2016
Fosshótel Jökulsárlón og frekari uppbygging
Mikil stækkun átti sér stað þetta ár. Hótel voru opnuð víðsvegar um landið og eitt glæsilegasta hótel landsins Fosshótel Jökulsárlón opnaði við rætur Öræfajökuls. Tvö Fosshótel opnuðu á Vesturlandi þ.e. á Hellnum og í Stykkishólmi. Jafnframt var Fosshótel Húsavík stækkað og herbergjafjöldi fór úr 66 í 110 herbergi.
2017
Fosshótel Mývatn
Í einstaklega fallegu umhverfi opnaði Fosshótel Mývatn dyr sínar árið 2017. Sama ár voru herbergin á Fosshótel Reykholt endurnýjuð ásamt móttöku og bar. Fosshótel Núpar var stækkað ásamt því að ný móttaka og barsvæði var tekið í notkun. Á Grand Hótel Reykjavík var nýr og endurgerður Háteigur opnaður.
2018 - 2019
Gildi, stefnur og framtíðarsýn
Horft inn á við og unnið með gildi, þjónustuloforð, áherslur og framtíðarsýn sem birtast í nýju myndmerki Íslandshótela og endurspeglar það sem hótelkeðjan og starfsfólkið stendur fyrir.
Undirbúningur hófst að stækkun á Fosshótel Reykholti og Fosshótel Stykkishólmi.
2020 - 2021
Covid-19
Þrautseigja og kraftur starfsfólks Íslandshótela skein í gegn við þessar fordæmalausu aðstæður. Nánast á hverjum degi stóð starfsfólkið frammi fyrir nýjum áskorunum og hnikaði hvergi á þessum erfiðu tímum.
2022
Opnun hótela á ný
Í maí voru öll 17 hótelin opin á ný sem var mikið gleðiefni. Í júlí opnaði svo Hótel Reykjavík Saga, nýtt og glæsilegt hótel sem er einstaklega vel staðsett í hjarta miðbæjarins.
2024
Green Key sjálfbærnivottun
Íslandshótel er stolt af því að vera fyrsta íslenska hótelkeðjan til að öðlast fulla Green Key vottun fyrir öll 17 hótel sín. Þessi virta, alþjóðlega viðurkennda vottun hefur stuðlað að sjálfbærum starfsháttum í yfir 60 löndum í meira en 25 ár.