Jafnt kynjahlutfall stjórnenda

Íslandshótel eru eitt þeirra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2019. Hótelin eru með virka jafnréttisstefnu, jafnlauna vottun og starfrækja jafnréttisnefnd.

Erna Dís segir Íslandshótel vera stolt af því að fá viðurkenningu Félags kvenna í atvinnulífinu fyrir að skara fram úr í jafnréttismálum.. Ljósmynd / Anton Brink.

Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) veitti nýverið í fyrsta sinn viðurkenningu til fyrirtækja, sveitarfélaga og stofnana fyrir að skara fram úr í jafnréttismálum á liðnu ári. Markmið Jafnvægisvogarinnar er að auka jafnvægi kynjanna í efstu lögum stjórnunar sveitarstjórna, fyrirtækja og stofnana þar sem oftar en ekki hefur hallað á konur. Tvö sveitarfélög og 16 fyrirtæki fengu viðurkenninguna að þessu sinni, þar á meðal Íslandshótel sem er jafnframt eina ferðaþjónustufyrirtækið sem hlaut viðurkenninguna.

„Það er heiður að fá þessa viðurkenningu,“ segir Erna Dís Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðasviðs Íslandshótela. „Okkur finnst mikilvægt að vera fyrirmynd fyrir okkar atvinnugrein og almennt í atvinnulífinu.“

Meira um þessa viðurkenningu má lesa á vefsíðu fréttablaðsins.