Hundalíf
Við bjóðum hunda velkomna
Hundar eru leyfðir á okkar hótelum út árið 2025. Athugið að Fosshótel Reykjavík, Þórunnartúni 1, er eina hótelið innan keðjunnar sem getur ekki tekið á móti hundum.
Mikilvægt er að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för því þeir fara í fyrirfram ákveðin herbergi. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli.
Vinsamlegast kynnið ykkur eftirfarandi reglur:
- Taka skal fram við bókun að hundur fylgi, þar sem sérstökum herbergjum er úthlutað
- Hundar mega ekki vera á almenningssvæðum hótelsins
- Við inn- og útritun skal hundur bíða bundinn úti eða í bíl
- Hundar skulu vera í taumi á leið til/frá herbergi
- Hunda má ekki skilja eftir eina á herbergi
- Æskilegt er að hundar séu í búri inn á herbergi
- Hundar skulu vera vel siðaðir og hávaðalausir
- Við innritun er greitt 4.000 kr þjónustugjald fyrir herbergi á dag fyrir allt að tvo hunda
- Gestir bera ábyrgð á hundinum og mögulegum skemmdum og/eða meiðslum á fólki sem hundurinn kann að valda