Fosshotel Vatnajökull Interconnecting Rooms
Fjölskylduherbergi
Fosshotel Vatnajökull Suite
Fosshotel Vatnajökull restaurant
Fosshotel Vatnajökull veitingastaður
Fosshotel Vatnajökull Exterior
Fosshótel Vatnajökull
Fosshotel Vatnajökull Exterior
Fosshótel Vatnajökull
Fosshotel Vatnajökull Bar
Bar
Fosshotel Vatnajökull Restaurant
Veitingastaður
Fosshotel Vatnajökull Conference Facilities
Ráðstefnu og fundaraðstaða
Fosshotel Vatnajökull Outdoor Area
Fosshótel Vatnajökull
Fosshotel Vatnajökull Bar area
Bar
Fosshotel Vatnajökull Interconnecting Rooms
Fjölskylduherbergi
Fosshotel Vatnajökull Suite
Mynd 1 af 0

Fosshótel Vatnajökull

HÓTEL
  • Hotels in Reykjavík
  • Hotels in North and East
  • Hotels in South
  • Hotels in West

Fosshótel Vatnajökull

Fosshótel Vatnajökull er vinsælt hótel á fallegum stað rétt fyrir utan Höfn, með einstakt útsýni yfir jökulinn.

Öll þægindi eru til staðar og allt til alls fyrir ferðalanga. Boðið er upp á fyrsta flokks matseðil á veitingastaðnum en auk þess er bar og aðstaða fyrir fundi og ráðstefnur á hótelinu.

Herbergi

Óviðjafnanlegt útsýni yfir Vatnajökul, stærsta jökul í allri Evrópu.

Á Fosshotel Vatnajökli má finna 66 herbergi sem skiptast í 5 rúmflokka frá einstaklings- til fjölskylduherbergja. Herbergin skarta parketi á gólfum, stílhreinni hönnun og bjóða upp á útsýni yfir Vatnajökul eða nærliggjandi fjöll. Öll herbergi bjóða upp á sjónvarp, ísskáp, baðherbergi og ókeypis þráðlaust net.

sjá nánar

Fundir og viðburðir

Stórkostlegt útsýni yfir Vatnajökul

Fosshótel Vatnajökull skartar 2 fundar- og viðburðarsölum sem henta vel fyrir stærri sem minni samkomur. Útsýnið og umhverfið svíkur engan.

sjá nánar

Veitingastaður

Veitingastaðurinn á Fosshótel Vatnajökli skartar fallegu útsýni yfir Vatnajökul.

Ferskur fiskur veiddur í Hornafirðinum og meðal annars boðið upp á makríl. Bjart og norrænt yfirbragð með stórum gluggum allan hringinn.

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum

  • Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00. 

  • Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.

  • Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu. 

    Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.

  • Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.

  • Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.

  • Já, bílastæði eru fyrir framan hótelið. 

  • Já.

  • Já, það eru hleðslustöðvar fyrir framan hótelið. 

  • Já, Fosshótel Vatnajökull skartar 2 fundar- og viðburðarsölum sem henta vel fyrir litla og meðalstóra hópa. 

  • Nei, Fosshótel Vatnajökull er lokað frá 1. nóvember til 30. apríl.

  • Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti 
    vantað meðan á dvöl stendur.

  • Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og 
    vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.

    Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.

    Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.

    Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.

  • Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innheimtur við komu á hótel.