Fosshótel Stykkishólmur
Fosshótel Stykkishólmur er þriggja stjörnu hótel með einstaklega fallegt útsýni yfir bæinn og eyjarnar í kring.
Hótelið er tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem vilja ferðast um Snæfellsnesið eða sigla um eyjarnar og skoða hið einstaka dýralíf sem þar finnst. Á hótelinu er að finna hlýlegt veitingahús sem býður upp á a la carte seðil þar sem hráefnið er sótt úr nærumhverfinu og innblásturinn kemur úr náttúrunni.
Í Stykkishólmi er frábær aðstaða fyrir golf iðkendur og er frítt fyrir hótelgesti að spila á Vikurvelli.
Svör við algengum spurningum
Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00.
Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.
Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu.
Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.
Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.
Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.
Já, bílastæði eru fyrir framan hótelið.
Já.
Já, það eru hleðslustöðvar á bílastæði hótelsins.
Já, Fosshótel Stykkishólmur býður uppá glæsilegan fundar- og ráðstefnusal sem var allur endurnýjaður árið 2020.
Nei, Fosshótel Stykkishólmur lokar í skamman tíma eða frá 8.desember til 15. janúar.
Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og
vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.
Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.
Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti
vantað meðan á dvöl stendur.Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innheimtur við komu á hótel.