Fosshótel Mývatn
Hótelið býður upp á 92 herbergi í glæsilegu umhverfi norður af Mývatni.
Hótelið er hannað af verðlaunaarkitektum og við hönnun og byggingu þess var nánast eingöngu notast við umhverfisvænt byggingarefni. Að auki er hótelið í fullkomnu samrými við umhverfi sitt þar sem byggingin er láreist og klædd með lerkivið og lyngi.
Á þessu glæsilega hóteli er boðið upp á standard herbergi og rúmgóðar svítur. Á jarðhæðinni er að finna einstakan veitingastað með fullkomnu útsýni yfir vatnið.
Herbergi
Fjölbreytt úrval herbergja með útsýni yfir vatnið eða stórbrotna náttúrunna sem umlykur hótelið
Láttu fara vel um þig í fallegum herbergjum, hönnuð í viðar stíl sem færir þig enn nær náttúrunni. Herbergjunum fylgir gervihnattarsjónvarp, lítill kæliskápur, ókeypis þráðlaust net og sér baðherbergi með sturtu eða baði. Njóttu morgunkaffisins með einstakt útsýni yfir Mývatn eða náttúrunnar sem umlykur hótelið.
Svör við algengum spurningum
Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00.
Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.
Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu.
Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.
Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl.10:00.*ath frá 1.nóvember-18.desember verður morgunverður frá 8:00-10:00.
Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.
Já, bílastæði eru fyrir framan hótelið.
Já það er bæði veitingastaður og sauna á hótelinu.
Já, það eru hleðslustöðvar fyrir framan hótelið.
Nei, Fosshótel Mývatn er lokað frá 1. nóvember til 18. janúar.
Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti
vantað meðan á dvöl stendur.Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og
vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.
Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.
Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innheimtur við komu á hótel.