Fosshotel Lind Reception
Móttaka
Fosshotel Lind exterior
Fosshótel Lind
Fosshotel Lind Breakfast Room
Morgunverðarsalur
Fosshotel Lind Family Room
Fjölskylduherbergi
Fosshotel Lind Family Room
Fjölskylduherbergi
Fosshotel Lind Standard Double or Twin Room
Standard Double eða Twin Herbergi
Fosshotel Lind Reception
Móttaka
Fosshotel Lind Reception
Móttaka
Fosshotel Lind exterior
Fosshótel Lind
Mynd 1 af 0

Fosshótel Lind

HÓTEL
  • Hotels in Reykjavík
  • Hotels in North and East
  • Hotels in South
  • Hotels in West

Fosshótel Lind

Fosshótel Lind er einkar vel staðsett þriggja stjörnu hótel á rólegum stað í miðbæ Reykjavíkur.

Hótelið er í göngufæri við Hlemm og Laugaveg. Sundhöll Reykjavíkur er skammt undan og einnig eitt helsta útivistasvæðis Reykjavíkur, Klambratún. Listunnendur geta rölt á Kjarvalsstaði og göfgað andann einnig er stutt í alla þjónustu og afþreyingu miðborgarinnar. 

Herbergi

Fallega innréttuð og notaleg herbergi í rólegu umhverfi.

Sjá nánar

Svör við algengum spurningum

  • Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00. 

  • Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.

  • Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu. 

    Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.

  • Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.

  • Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.

  • Já, en takmarkaður fjöldi er í boði og ekki er hægt að fyrirfram bóka bílastæðin. Það eru einnig bílastæði með gjaldskyldu og bílastæðahús í nágrenninu. 

  • Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti 
    vantað meðan á dvöl stendur.

  • Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og 
    vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.

    Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.

    Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.

    Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.

  • Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innifalin í herbergjaverði.