Fosshótel Baron
Þriggja stjörnu hótel við sjávarsíðuna. Í göngufæri við Laugaveginn, Hörpu og aðra skemmtilega staði.
Uppruna Fosshótels Barons má rekja aftur til 19. aldar en hluti hótelsins var byggður árið 1898 og var þar með fyrsta steinsteypta byggingin í Reykjavík.
Franskur baron kom hingað til lands og lét byggja húsið, við Barónsstíg 4, en hann hugðist stofna þar fyrsta mjólkurbúið í Reykjavík. Bæði Barónsstígur og Fosshótel Baron voru nefnd eftir franska baroninum.
Í þessari sögufrægu byggingu við sjávarsíðuna má finna þriggja stjörnu hótel í göngufæri við Laugaveginn, tónlistarhúsið Hörpu og aðra skemmtilega og áhugaverða staði í miðbæ Reykjavíkur. Á Fosshótel Baron eru 120 herbergi og hentar hótelið einkar vel fyrir einstaklinga, fjölskyldur sem og hópa.
Svör við algengum spurningum
Innritun er eftir kl 15:00 og útritun er fyrir kl 12:00.
Snemmbúin og síðbúin innritun er í boði gegn vægu gjaldi en tekur ávallt mið af bókunarstöðu hótelsins hverju sinni og birtist þá sem valmöguleiki í tölvupósti sem gestir fá nokkrum dögum fyrir komu. Einnig er hægt að hafa samband við hótelið.
Ef bókað er á okkar vef og greitt við komu, þá er hægt að afbóka bókun allt að 48 klst. fyrir komu í gegnum link sem fylgir með bókunarstaðfestingu.
Athugið að ekki er hægt að breyta bókun.
Morgunverður er í boði frá kl. 7:00 til kl. 10:00.
Já, hundar eru velkomnir á hótelið. Takmarkað magn herbergja er í boði á hverju hóteli fyrir sig og mikilvægt að taka fram þegar gisting er bókuð að hundar eru með í för. Hægt er að kynna sér skilmála hér.
Já það eru bílastæði með gjaldskyldu, sjá frekari upplýsingar hér.
Já. Barinn er opinn milli 12:00-22:00 alla daga og Happy Hour er á milli 16:00-18:00 alla daga.
Já, það eru hleðslustöðvar fyrir framan hótelið.
Hjá Íslandshótelum leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni og að tryggja næði gesta okkar. Markmið okkar er að draga úr umhverfisáhrifum starfseminar með því að lágmarka notkun á óþarfa hreinsiefnum og
vatni. Þetta þýðir að starfsfólk okkar munu eingöngu fara inn í herbergi gesta til að þrífa og fylla á, sé þess óskað.Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti vantað meðan á dvöl stendur.Við vonum að með þessu upplifir þú persónulegri og afslappaðari dvöl hjá okkur.
Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu ekki hika við að hafa samband við starfsfólk okkar.
Fyrir nánari upplýsingar um sjálfbærnistefnu og Green Key vottun Íslandshótela, smelltu hér.
Við biðjum gesti vinsamlegast um að láta móttökuna vita við innritun eða fyrir kl. 10 samdægurs ef óskað er eftir þrifum. Gestum er einnig velkomið að biðja um hrein handklæði, rúmföt og annað sem gæti
vantað meðan á dvöl stendur.Lagður er gistináttaskattur að upphæð 666 ISK á hvert herbergi / hverja gistinótt. Skatturinn er innifalin í herbergjaverði.